Það eru Seymour Duncan pikkuppar í honum. Vintage Broadcaster í brúnni STL-1b og Vintage Rhythm í neck STR-1. Og hann sándar virkilega vel, næ sándum sem Stratocaster eða LesPaul hafa ekki, eitthvað svona mitt á milli.
Ég keypti flest allt hjá Warmoth, body og neck voru úr Showcase og þetta kostaði um 1250$ með UPS sendingu. Svo voru gjöldin um 39.000, þannig að þetta er svona 180 - 190 þús í heildina. Fékk þetta í hendurnar 6 dögum eftir að ég pantaði.
Svo er ég með annan í smíðum (Stratocaster), en þá pantaði ég háls og body með custom builder sem Warmoth bjóða upp á, en það tekur 10 - 12 vikur…væntanlegt í september.
Svo keypti ég verkfæri og fleira hjá stewmac.com fyrir rúmlega 100 þús. Það þarf ótrúlega mikið af verkfærum í þetta, setup kit, fretting kit, og margt fleira. En það var auðvitað ekki keypt bara fyrir þessa samsetningu, ég á 12 aðra gítara sem þurfa viðhald. :)