Ég keypti Tonepros Klusons fyrir minn LP Classic. Allt annað líf að stilla, orginal tuners voru alveg glataðir.
Svo setti ég Gotho Vintage í American Standard strat, en það var bara fyrir lookið. :)
Oftast þarf að gera ráð fyrir að bushings passi ekki í gatið og það þarf annaðhvort að kaupa adapter bushings eða stækka gatið með reamer eða einhverju góðu verkfæri.
Stewmac er með gott úrval af stilliskrúfum og auðvitað öll þau verkfæri sem manni getur dottið í hug. Þeir senda með DHL og tekur bara nokkra daga, 4 - 5 í mesta lagi, og frekar sanngjarn sendingarkostnaður.
Ég keypti Tonepros skrúfurnar hjá RS guitarworks.