Ég sótti pedalann í dag og er búinn að rífa hann sundur, ég fór eitthvað að fokka í innyflunum á pedalanum og þá tókst mér að fá hann til að hljóma eins og reiður naggrís, það heyrist semsagt svona “Oink oink!” hljóð úr honum núna og það þarf ekki einusinni að tengja hljóðfæri í hann til að hann láti svona, maður bara kveikir á honum og þá byrjar hann að gelta eitthvað.
Þessi pedali er reyndar alveg gagnslaus með gítar í augnablikinu en núna er ég að leita að aðferð til að ná aðeins meiri stjórn á þessu naggrísarhljóði svo að ég geti notað hann sem trigger/frumstæðann sequencer fyrir trommusyntha.
Gítarar = Gibson Les Paul Standard, Fender Jazzmaster. Aria Einhverfjandinn.