Metalbassaleikari að spila fönk.. Gangi þér vel.
Ég man í svipinn bara eftir einum metalbassaleikara sem hefur reynt að færa sig yfir í funk og það var bassaleikarinn sem var í Suicidal Tendencies og er núna í Metallica, hann setti saman hljómsveit sem hét Infectuous Grooves sem átti að vera fönkhljómsveit en hljómaði bara eins og vont metalband að riðlast á tónlistarformi sem þeir skildu ekkert í.
Þú nennir ekki að gera “neinar ruglæfingar” en vilt spila funk.. Hefurðu séð hvaða lið er að spila funk hérlendis? Þetta eru sprenglærðir FÍH gaurar, þeir eru búnir að gera allar ruglæfingar sem fyrirfinnast og búa til nokkrar í viðbót sjálfir.
Funk er drulluerfitt tónlistarform til að spila svo vel sé og rosalega margar fönkhljómsveitir eru ekki góðar því þær hafa ekki tæknina, fræðilega skilninginn til að geta unnið með oft flókna hljóma í tóntegundum sem tildæmis blásarar ráða við að spila í (saxofónleikari spilar ekki svo auðveldlega í E eða ég átti amk erfitt með það á sínum tíma) og mikilvægast af öllu grúvið.
Metalgrúv og funkgrúv eru algjörlega gjörólíkir hlutir, það eina sem þau eiga sameiginlegt er að bassinn ætti helst alltaf að koma inn á einum.
http://www.youtube.com/watch?v=IHE6hZU72A4