Ef þú ert að leita að þessu klassíska djasssándi sem er hreinn gítar með frekar lítið treble og glás af bassa þá myndi ég skoða low output pickuppa, jafnvel single coil eða P90 pickuppa.
Ég er með Seymour Duncan Antiquity í einum gítarnum mínum og ef ég rúlla burtu mestöllu treble með tónstillinum á gítarnum þá brýst fram helvíti fínt gamaldags djasssánd.
En ef að þín hugmynd um djass er Mezzoforte eða eitthvað þvíumlíkt þá er hægt að nota nánast hvernig pickuppa sem er í svoleiðis tónlist, þú bara traðkar á choruspedala og spilar svo eins og þér leiðist það sem þú ert að gera.
Gítarar = Gibson Les Paul Standard, Fender Jazzmaster. Aria Einhverfjandinn.