Halló, ég er 27 ára gítarleikari og er að leita mér að hljómsveit eða einhverju verkefni. Hef töluverða reynslu í hljómsveitarbransa og hef verið að spila í pöbba-hljómsveitum síðastliðin 7 ár eða svo. Ég hef lengi spilað á gítar, en hef verið að læra mikið síðustu 2-3 ár. Mín uppáhaldsmúsík er ýmis konar rokk, hart rokk og metall. Við erum að tala um allt frá Rolling Stones til Pantera. Er þokkalega vel græjaður til að spila flestar stærðir gigga. Helstu áhrifavaldar í tónlist eru James Hetfield, Zakk Wylde, Jimmy Page, Malcolm Young, Angus Young, Billy Gibbons og margir fleiri.
Einnig gæti ég svo sem tekið að mér einhvern söng, hef verið að syngja að einhverju marki í flestum verkefnum sem ég hef tekið þátt í. Ég á líka mínar græjur fyrir það, mic, mic-standa og snúrur.
Ég er staddur miðsvæðis í Reykjavík, en er á bíl, þannig að ég get nú svo sem keyrt hingað og þangað til æfinga.
Endilega sendið mér Huga-meil eða e-mail á
hinnraudi@gmail.comKveðja Reyni
I got rabies shots for biting the head off a bat but that's OK - the bat had to get Ozzy shots.