2ja ára gamlir bílar eru að seljast á meira en þeir kostuðu nýir, einfaldlega vegna þess að það er samt miklu betri díll en eins bíll nýr úr kassanum, sem hefur hækkað trúlega tvöfalt, allavega í tilfelli japanskra bíla (enda stendur yenið fyrir sínu).
Seljanda þessa Viper 400 hefur sennilega legið mikið á að losna við hann / fá peninginn, eða hreinlega ekki verið nógu gráðugur, ætti vel að vera hægt að fá meira fyrir þann gítar, kostuðu um 70 ef ég man rétt á toppi góðærisins. Svo er annað mál hvort seljandinn í þessu tilfelli er að skjóta of hátt, þori ekki að tjá mig um það, veit ekki hver verðlagninginn er á 1000 seríunni þessa dagana, var aðallega að benda á réttmæti þess að miða á fyrir-kreppu-nývirðið.
Svo skulum við ekki gleyma gullnu reglu kapítalismans; allt er þess virði sem kaupandinn er tilbúinn að borga fyrir það ;)