Erfitt að finna Gibson Les Paul á undir 100 þús… en þó alveg möguleiki… var einn LP Studio til sölu á undir 100 þús. fyrir stuttu… Mexíkó Telecaster finnst alveg undir 100 þús, þannig úrvalið ætti að vera meira í telecaster í þessum verðflokki…
Varðandi hvor gítar henti betur í ákveðna tónlistarstefnu þá er mitt svar: báðir henta þessum stefnum… Þetta er frekar persónubundið val… best að prófa bæði hljóðfærin og finna hvor henti þér betur, hvernig gítarinn fellur að þér, hálsinn og búkurinn sem og hljómurinn…
Mjög mikill munur samt á þessum hljóðfærum, single coil, vs. humbucker, bolt on neck vs. set neck og svo mætti lengi telja…