Neib, fékk sama komment og vinkona mín sem fór líka.
Það myndi greinilega drepa þetta fólk að koma með honest comment á það sem maður er að gera.
Bara eh “Nei þetta er ekki alveg nógu gott, vantar herslumuninn til að fleyta þér áfram. Mjög gott samt og flott rödd og mjög vel gert.”
ég meina, come on, ef þetta var mjög gott og ég er með flotta rödd og blabla því komst ég ekki áfram?
Einn kunningi minn komst áfram fékk komment frá þessari aðaldómnefnd að hann hefði sungið vel en væri ekki nógu mikill rokkari útlitslega til að vera að syngja svona lög. Þannig hann komst ekki áfram þar.
Að mínu mati er þetta bara rugl, allt þetta concept og dómnefndin skipuð algjöru burnout fólki. Meina Björn Jörundur, ekki beint þekktur fyrir sönghæfileika eða slíkt. Semur Frelsið er Yndislegt og þá er hann frábær ? crap.
Gæti verið að ég hljómi bitur, sé bara eftir 4-5 klst sem ég eyddi í að bíða ;)
Komst þú áfram ?