Jæja, þá á að skella sér á fyrsta distortion effektinn, en spurning mín er eftirfarandi.
Ég vil fá frekar ódýrann effekt (undir 7þús). ég er búinn að skoða Boss DS-1 og lýst frekar vel á hann. Með hvaða effekt mælið þið með?
Spilverk.com eru með Biyang overdrive sem reykspólar yfir alla þessa Boss pedala í sándi, kostar örugglega í kringum 7000 kallinn, þó að það heiti overdrive þá fer það alveg upp í töluverða bjögun, Fuzzið frá Biyang er líka töluvert gott.
Mér hefur alltaf fundist þessir Boss distortionpedalar frekar óspennandi, þeir hljóma soldið eins og maður sé með húsflugu fasta í eyranu.