Platan heitir Tommi, Textar og Lög, ég mæli heilshugar með henni ef þú finnur hana einhversstaðar, þetta er alveg þrusuplata.
Grínlaust, þessi gaur er “the real thing” og semur lög um hvað löggur séu vondar, hvað maturinn í fangelsum sé vondur og hvað það sé erfitt að vera glæpamaður.
Ég fann mitt eintak á geisladiskaútsölu fyrir nokkrum árum og borgaði alveg 200 kall fyrir diskinn, bróðir minn stal mínum disk þannig að ef þú rekst á þetta einhversstaðar sendu mér þá einkaskilaboð svo ég geti náð í annað eintak.
Síðustu 2 eða 3 lögin á disknum eru hrein hörmung, það var pláss á disknum svo Tommi gaf vinum sínum Skara Skakka og Bjarna Móhíkana pláss fyrir nokkur lög en hin lögin á disknum eru helvíti mögnuð, ég vil meina það að ég hafi útsett þau, jafnvel samið þau en ætla sko ekki að biðja Tomma um kredit fyrir það því hann væri vís með að senda Annþór og félaga á mig.
Gítarar = Gibson Les Paul Standard, Fender Jazzmaster. Aria Einhverfjandinn.