jámm, var að kaupa hann notaðann í dag og hann virkar ekki, faðir minn ætlar að láta eh vin sinn kíkja á hann, vildi bara vera tilbúinn ef það væru lamparnir, en hvar er hagstæðast að versla lampa?
Ég á ekki neina lampa því ég gaf vini mínum þá alla (hann gerir við magnara þannig að ef vinur pabba þíns er ekki að standa sig þá get ég komið þér í samband við hann)
Það er ekki fyrir hvern sem er að koma gítarmögnurum í lag, ef pabbi vinar þíns er einhver stereógræjuviðgerðarkall þá gætirðu jafnvel verið að gera illt verra með því að láta hann fara höndum um magnarann, ég hef heyrt í mögnurum sem svoleiðis menn hafa farið höndum um og stundum strauja þeir alveg burtu alla bjögun og þessháttar því þeir hafa ekki hugmynd um það hvernig gítarmagnarar eigi að virka.
Annars bara til hamingju með magnarann! :)
Gítarar = Gibson Les Paul Standard, Fender Jazzmaster. Aria Einhverfjandinn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..