Sælir.

Málið er að inputið á Epiphone Les Paul Black Beauty gítarnum mínum (mynd, samt ekki black beauty bara custom) er laust þannig að maður getur fært það í hringi (ekki inn og út) og snúið því. Ég hef reynt að festa það nokkrum sinnum áður með því að herða rærnar sitt hvoru megin við kassalaga plaststykkið í sitt hvora áttina og það hefur virkað, en inputið losnar alltaf aftur.

Hvernig festi ég það þannig það losni ekki aftur? Þetta er farið að fara alvarlega í taugarnar á mér..