Svo þetta sé skýrara fyrir seljandann.
Þeir komu fyrst með EL34 lömpum en síðar með 5881 (6L6). Hann ætti að vera merktur að framan 5881 undir JCM900 logo-inu ef hann er með þeim lömpum bara svona til þess að einfalda þetta. Þetta er þó límmiði sem gæti hafa verið fjarlægður, þá er best að styðjast við serial númer eða einfaldlega skoða merkingar á lömpum inn í hausnum.