Þú ert væntanlega að hugsa um Comfortably numb sólóið frá Pulse tónleikunum (ef ekki þá er það svo fáránlega awesome að þú skalt kíkja á það, ef þú hefur ekki heyrt það).
Ég hef lengi reynt að negla þetta sound, margir hafa reynt að finna þetta sound og þetta hefur oft verið rætt á mörgum spjallborðum og þegar upp er staðið þá er bara fólk ekki að ná þessu soundi. Ástæðan er einfaldlega sú að maður nær ekki þessu soundi með einum magnara. ;-)
Til að fá þetta fáránlega þétta og vangefna sound þá þarf maður að vera með alveg svakalegann fuzz/distortion (þótt að Gilmour notaði sjálfur Big Muff þá var hann með mjög heita pickuppa og fleiri effecta og græjur sem að hjálpa til við að fá þetta sound svona þétt) og svo nokkra (2-6) lampa magnara sem maður fær að hækka svolítið í. :-)
Ég reyndi Big Muff á sínum tíma og ég fékk ekki það sem ég vildi úr honum og endaði á Fuzz Factory frá Z.vex sem kom mér nær þessu soundi en Big Muff-inn.
En já endilega leitaðu á HC og guitargeek og þá færðu fullt af hugmyndum af því hvernig má reyna að ná þessu soundi en Pulse soundið er samt nánast ófáanlegt. :-p
Bætt við 13. apríl 2008 - 19:10
Já og til viðbótar, eftir að ég seldi Big Muffinn þá fékk ég svakalega fordóma á EHX vörur sem ég hef ekki náð að losa mig við fyrr en núna þegar ég fékk með EHX SMM Hazarai. Prufaðu Big Muffinn vel áður en þú kaupir hann. ;-) Hann er ekki fyrir alla. :-)