jæja núna er ég að fara fá mér vintage Marshall super lead og ég er að spá hvort að þið væruð að selja þannig eða einhver sem þið þekkið, helst árgerð 1967 eða alveg til 1974
hehe það er held ég eeengin möguleiki á að þú finnir hann..ég þekki einn sem á þannig og hann sagði mér að hann var 1 af 2 sem ættu þannig á landinu og hann keypti hann af eitthverjum hálfvita á 110 þús kall og það er ekki séns að hann selji hann. hans er held ég 67 árgerð..þann haus eru deep purple,led zeppelin og fleiri fræg bönd búin að spila í gegnum
Varst það ekki þú sem ætlaði að kaupa einhvern gamlann Marshall af Gunnari Bjarna? Annars, það sem dotstudio182 sagði. Gangi þér samt vel að finna svona.
jú en það er ekkert alltof vel farið með hann þannig að ég ætla að splæsa mér á super lead…ætlaði bara að athuga hvort að einhver ætti svoleiðis hérna, þannig að ég kaupi þetta þá á ebay held ég
jebb prufaði hann í rín prufaði tvo marshalla sem hann átti og 2 gibson gítara, hann ætlaði að selja hann á 200 þús, sem er of mikið miðað við hvað hann er illa farinn en samt sjaldgæfur, vantaði logoið á hann tremoloið virkaði bara á einni rásinni vantaði hlífinna aftan á dáldið tættur,þannig það var alltof mikið sett á hann
ÉG myndi nú bíða með að kaupa mér eitthvað að utan þar til gengið hefur eitthvað aðeins lagast. :-)
Annars þá myndi ég kaupa mér svona gamla vintage magnara frá Bretlandi (eða þýskalandi, þeir eru öflugir í vintage græjum) þar sem þeir eru með sama rafmagn og við (en fyrir græjur frá BNA þyrftirðu að vera með spennubreyti, sem ég myndi ekki sætta mig við fyrir Vintage magnara). ;-)
Annars þá vona ég að þú finnir einn svona grip því þeir ættu að sounda mjög vel.
Jamm Breska ebay hefur verið sterkt í Marshall. Eini gallin hefur verið flutningurinn en Jonar geta séð um það en það er bara dyrt! Ódyrara að hoppa sjálfur út til Bretlands og sækja svona. Gerði það við DSL :-)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..