Ég segi bara… NICE…. varðandi litinn, er alveg að fíla ég svona “öðruvísi” Marshall tolex áklæði, sbr, rauður, fjólublár, grár, hvítur og blár svo maður nefni þá helstu sem maður man eftir… Þarf ekki allt að vera svart til þess að vera Rokk.
Draumurinn minn er samt 6100LM Stæða frá 1992 þe. 30th Anniversary útgáfan, kom í bláu tolex-i og þetta er sá magnari sem gerði mig að ævilöngum Marshall aðdáanda… Hef samt alveg tekið í gamlar goðsagnir (early JTM45 t.d.) en þar sem ég vil meiri fjölhæfni þá hentar þessi haus mér afar vel… ss. hann er á “to buy” listanum mínum. Sá einn þannig notaðan í Köben í AAGE búðinni núna í vikunni… en budgetið ekki til staðar… Smá úturdúr, þurfti bara að koma þessu frá mér :)
En þessi magnari fær alveg mitt vote, og gott tribute til Randy Rhoads sem var eðal gítarleikari…