hvernig lýsir bilunin sér samt ?
Virkar þetta eins og sambandsleysi í jack plögginu (lóða plöggið upp á nýtt eða skipta um það, prufa aðra snúru)
hljómar sándið rifið (keilan sprungin)
heyrist ekki neitt og kemur ekki einusinni on ljósið (öryggið farið eða sambandsleysi í klónni eða snúrutengingunni inná magnarann
Er einhver takki sem virkar ekki (takkinn sjálfur gæti verið bilaður, eða lélegar lóðningar)
Þetta eru svona algengustu og einföldustu bilanir. Getur verið gott að lýsa vandamálinu því þá getur etv. einhver sagt þér nákvæmlega hvað er að (gæti flýtt fyrir viðgerð að vita það)
Bassadót: FBass BN5 & MusicMan Bongo5 -> Line6 Relay G50 -> Ampeg PF500 -> Ampeg PF210HF