hljómarnir eru D-G-C-D, pikka svo bara upp :D
Bætt við 18. febrúar 2008 - 21:50
Í introinu þ.e.a.s. Restin er svona:
C Bb F C
Ég vakna oftast þreyttur, varla með sjálfum mér,
Bb F C
en ég veit það er til annað líf en það sem ég lifi hér,
Bb F C
og þrá mín hún vakir meðan þokan byrgir mér sýn,
Bb F C
mig þystir í eitthvað annað en gúanó, tékka og vín.
C Bb F C
Á fiskinum lifir þorpið, þorskurinn er fólkinu allt,
Bb F C
það þrælar alla vikuna, vaðandi slor og salt.
Bb F C
Við færibandið standa menn en þeir finna þar enga ró
Bb F C
flestir þeir ungu komnir suður þar sem af draumunum er nóg.
Am C G F
Langa dimma vetur vindurinn smaug í gegnum allt.
Am C G
Kannski var öllum öðrum hlýtt, en mér var allavegana kalt
Am C G F
Það biðu allir eftir sumrinu en biðin var löng og ströng
C G F C
bátarnir lágu tómir við kajann, í kinnungunum söng.
C Bb F C
Faðir minn átti drauma sem dóu fyrir lítið fé.
Bb F C
Mig dreymdi um að verða að manni en ég náði honum aðeins í kné.
Bb F C
Ég gleymdi seint þeim augum, gínandi botnlaust tóm,
Bb F C
gamall maður fyrir aldur fram með brostinn hrjúfan róm.
C Bb F C
Þegar ég var rétt orðinn sautján um sumarið barst mér frétt,
Bb F C
að sæta dúkkan hans Bensa í Gröf væri orðin kasó létt.
Bb F C
Næturnar urðu langar og nagandi ótti með
Bb F C
negldur ég gat ekki tekið til baka það sem hafði skeð.
Am C G F
Langa dimma vetur vindurinn smaug í gegnum allt.
Am C G
Kannski var öllum öðrum hlýtt, en mér var allavegana kalt
Am C G F
Það biðu allir eftir sumrinu en biðin var löng og ströng
C G F C
bátarnir lágu tómir við kajann, í kinnungunum söng.
C Bb F C
Aldrei fór ég suður, alltaf skorti mig þor.
Bb F C
Hvert einasta sumar var því frestað, svo kom haust og svo vetur og vor.
Bb F C
Nú er ég kominn á planið og ég pæli ekki neitt,
Bb F C
ég pækla mínar tunnur - fyrir það ég fæ víst greitt.
C Bb F C
Ég hugsa oft um börnin mín, bráðum kemur að því
Bb F C
að þau bíða ekki lengur, þau fara, hér er ekkert sem heldur í.
Bb F C
Enn koma tómir bátarnir og bræðslan stendur auð.
Bb F C
Baráttan er vonlaus, þegar miðin eru dauð.