Ég er búinn að nota Pedaltrain og George L kapla og tengi í þrjú ár. GL eru algjör snilld á effectabretti og þar sem er lítið pláss. Auk þess þarf engin verkfæri nema góða beitta töng (líka hægt að nota dúkahníf, kaplinum er stungið aftan í tengið og hann svo festur með skrúfu.
Bætt við 14. febrúar 2008 - 00:11
Vil bæta því við að GL kapall hefur ALDREI bilað hjá mér á effectabretti, hins vegar eru þeir ekki góðir í snúrut f/ gitar, bassa o.s.frv, of stífir og þola hreyfingu ekki eins vel og gamla góða designið.
Á móti kemur að þú ert ekki nema 1 mínútu að laga snúruna tengið ef það bilar. Skrúfa sundur…stytta snúruna um 1-2 cm með því að klippa eða skera hana með beittum hníf…skrúfa saman aftur!!!
“Talking about music is like dancing about architecture”