Nú þarf þessi elska að fara að fara bráðum þar sem að ég er að fara að skreppa til útlenda eftir nokkurn tíma, ég er tilbúinn að setja 30.000 kr. á hana en ég fer ekki lægra, þetta er alveg við það að vera glæný græja svo þá erum við að tala um sirka 26.000 króna lækkun!
Er með til sölu Digitech GNX4 Multieffect sem hefur upp á að bjóða fullt af effectum og magnaratýpum, hægt er að taka upp á staðnum, tengja hann við tölvu, og allt mögulegt af tengjum og ég veit ekki hvað er ekki hægt á þessari græju. Þetta er einn háþróaðasti multi-effect sem að hefur verið gerður. Ég fór upp í Hljóðfærahús að vitja til verðsins á honum og þeir segja að hann muni kosta 55900 kr. nýr. Ég hef spilað sáralítið í gegnum græjuna og hann er alveg eins og nýr, ekki einn galli, ekki skráma. Leiðbeiningar fylgja með en get því miður ekki látið kassa fylgja með þar sem að ég skildi hann eftir þegar ég flutti multi-effectinn inn. Fyrst að hann er keyptur í Bandaríkjunum þá læt ég straumbreyti fylgja með ásamt spennubreyti fyrir græjuna. Tilboð óskast og áhugasamir hafi samband við mig í gegnum Hugaskilaboð eða svarið hér að neðan. Kannski ég bæti við að þetta var keypt einhverntímann í apríl á þessu ári.
Takk fyrir.
Hér er linkur fyrir upplýsingar um græjuna : http://www.digitech.com/products/GNX4/index.htm
Og ég ætla að taka það fram að það á að fylgja forrit til þess að taka upp í tölvu með multi-effectnum, en þegar ég keypti hann í Bandaríkjunum þá var forritið ekki í pakkanum og ég áttaði mig ekki á því fyrr en ég var kominn heim, en ég læt bæklinga með forritinu fylgja ef að fólk vill kaupa sér forritið niðri í Hljóðfærahúsi.
Myndir :
http://i193.photobucket.com/albums/z216/Sindrifg/IMG_2077.jpg
http://i193.photobucket.com/albums/z216/Sindrifg/IMG_2078.jpg
http://i193.photobucket.com/albums/z216/Sindrifg/IMG_2079.jpg
http://i193.photobucket.com/albums/z216/Sindrifg/IMG_2081.jpg
http://i193.photobucket.com/albums/z216/Sindrifg/IMG_2082.jpg
http://i193.photobucket.com/albums/z216/Sindrifg/IMG_2086.jpg