Ertu að leita eftir því að læra ákveðinn stíl? Víkka raddsviðið eða ná betra valdi á röddinni þinni? Ef þú vilt bara læra almennt betur að syngja þá mæli ég með því að fara í einkatíma til söngkennara.
Getur athugað með tíma hjá Má Másyni sem kennir við söngskólann í reykjavík. Seinast þegar ég vissi var hann að taka fólk í einkatíma, en á móti kemur þá er hann klassískur söngkennari en hann kennir þér góðar aðferðir til að beita röddinni rétt.
Annars geturu líka ath með Ragnheiði Einhversdóttir, hún er mjög fær söngkennari í almennri beitingu. Númerið hennar er: 8658212
vona að þetta gagnist þér eitthvað, annars ef það er eitthvað er þér frjálst að henda á mig línu ef þú hefur einhverjar fleiri spurningar.