Ég er nú ekki sá gáfaðasti í tónfræði, enda aldrei lært hana, en ég hef skilið þetta þannig hingað til að modes segja til um hvernig skali skal spilaður, þe. tónbilið á milli nótnanna í skalanum. Dorian hefur ákveðna uppröðun á nótnavali á meðan hin hafa aðeins öðruvísi uppröðun, sem hefur svo áhrif á “moodið” eða hvernig skalinn hljómar, hvort hann hljómi happy eða sad, eða eitthvað annað.
Ef þú ferð á netið og finnur einhvern skala í bæði dorian og mixolydian, þá heyrirðu alveg held ég hvað ég meina. “Vibe-ið” sem þú færð frá þessum skölum er ekki líkt.
Annars getur örugglega einhver hér orðað þetta betur og kannski leiðrétt þetta ef þetta er eitthvað kjaftæði.