Ekkert endilega, ef þú hefur nógu mikinn áhuga á þessu og nógu mikinn aga þá er þetta ekkert mál. Minnir samt að hann hafi aðallega gert þetta á Zappa árunum þar sem Zappa eiginlega setti hann í “æfingarbúðir” og hann æfði sig 10 tíma á dag.
Ég meina, þú verður ekkert góður nema þú æfir þig það er bara staðreynd. Það er reyndar ekkert öruggt að þú verðir góður af því að spila 10 tíma á dag en það er mjög öruggt ef þú ert skipulagður í því og gerir eins og Steve Vai gerði, hann skrifaði allt niður og mældi eftir dag hvernig honum gekk og hvað hann gerði og var mjög skipulagður.
En annars er þetta frekar mikið já :)