Já góðir hálsar (og slæmir, heheh…)
heyrðu ég er að spila á gítar og keypti einhverntímann svona Stealthplug dæmi til að taka upp úr hljóðfærahúsinu, hef bara verið að leika mér með þetta en nú held ég mig vanti eitthvað betra en veit það samt ekki allveg. Ég er semsagt með stealthplugginn til að tengja mig við tölvuna og svo eitthvað Traction forrit sem ég tek uppí, ef einhver hefur reynslu af þessu hvort ég þurfi bara bæði nýtt forrit og nýjar græjur eða hvort það komi fínt sound t.d. með því að fá sér bara pro tools og halda stealthplugnum?