Of kraftmikill?
Þetta er klassískur Marshall, örugglega drullu flott sánd (ekki minni spámenn en Jimi Hendrix og Matthew Bellamy sem treysta/treystu þeim) og þar að auki á ótrúlega lágu verði (miðað við þær tölur sem þú varst að nefna hérna fyrr í þræðinum). Marshall magnarar endast ótrúlega lengi eftir því sem ég hef heyrt og ég trúi ekki öðru en að þetta séu þvílík kostakaup.
Ef þú ætlar að eyða rúmum 100 þúsund krónum í magnara, hvaða magnara ætlarðu að finna sem er ekki kraftmikill?
Það er vissulega pínu galli hvað þetta er ótrúlega þungt dót, en ég mundi láta mig hafa það.
“We use Marshall because when we jump on them they still work, and they sound good … real good!”
- Matthew Bellamy (segir okkur eitthvað um endinguna)
Er ekki málið að fá að prófa einhvern sambærilega magnara í Rín og gá hvort þú diggar ekki pottþétt sándið?