Fyrirgefðu mér, þetta ER fullyrðing og alhæfing, en þetta er hlutlaust, ég gæti þannig lagað sagt, “Pearl eliminator er áltinn góður af sumum en verr af öðrum” og það væri alhæfing og sönn í þokkabót, en samt sem áður hlutlaus.
Lykilorðið í alhæfingunni var “sennilega” (sbr. líklegast, ef til vill, kannski)
Ég sjálfur hef bæði reynslu af DW 9000 og er eigandi Pearl Eliminator, ég giska á að þú hefur ekki reynslu af öllum þessum kickerum (correct me if im wrong) ef þú kallar þá ofmetna.
Þessir 3 sem þú nefndir, ásamt fáeinum öðrum (nefni m.a. axis) eru einfaldlega bestir, þeir hafa orðsporið, vinsældirnar og fólk kaupir þetta af ástæðu, ekki af því það “er í tísku”. (vona að þú gerir það ekki).
Sjálfum finnst mér Eliminatorinn aðeins örlítið betri en DW 9000 kickerinn, ég er vanari honum og auk þess býður hann mér upp á mun fleirri stillikosti. Hinsvegar var DW kickerinn mjúkur sem fjöður líka.
Bottom line: Sennilegast er orðið sem þú misskilur fyrir “pottþétt” þegar það þýðir eitthvað annað, auk þess er það hárrétt ályktun hjá honum, enda er Eliminatorinn meðal best einkunnuðu og vinsælli double-pedulum í dag.