ég hef aldrei heyrt um neinn sem ætlar að panta sér sett frá netverslunum en ég held að það sé ekki hægt… allavega er 8pc sett oversized item alveg for sure og þá sendist það bara innan bandaríkjanna og ef þú ert heppinn til kanada.
Hins vegar geturu pantað í gegnum shopusa, en ég get ekki svarað þér alveg með tímann, en ég mundi telja að það sé í kringum 1-2 mánuðir.
En ef þú pantar frá shopusa þá fer þetta að nálgast verðið sem er í tónabúðinni (reiknivél shopusa.is er ekki alltaf nákvæm) svo ég mæli með því að þú verslir við þá, þar tekur settið 3-5 vikur að koma til landsins og vera tilbúið til afgreiðslu, ef það er til á “lagernum í Hollandi” annars þarftu að bíða alveg frá því að þeir fara útí skóg að höggva tré og að þeir sendi settið (þá gera þeir settið fyrir þig, sem er örugglega dýrara og tekur 8 mánuði)
En mér finnst það vera mikill misskilningur að það borgi sig alltaf að flytja inn dót. En þetta eru mín ráð, take them or leave them, ekki kvarta
Pearl Masters BRX Midnight Fade 154# 10x9“ 12x10” 14x14“ 14x6,5” 20x16“