Ég fékk mér nýlega Guitar Pro 5, en mér finnst forritið hljóma svo þvingað og skrikkjótt eitthvað. Ég veit ekki hvort forritið hljómi bara svona eða þetta er eitthvað stillingaratriði, en ég notaði seinast GP 4, og það hljómaði mun betur svo ég geri ráð fyrir því að þetta hljóti bara að vera eitthvað sem ég get lagað.

Ef einhver hér hefur lent í þessu eða kann vel á GP 5 væri ég afar þakklátur ef þið gætuð leiðbeint mér útúr þessu.