Veit einhver hvernig ég get komist að því hvaða árg. gítarinn minn er? Það er raðnúmer á honum sem ég býst við að hægt sé að nota til að komast að því.
Eftir smá leit á google þá komst ég að því að einhverjar týpur af Samick gíturum byrja á tveim tölustöfum (t.d. 97) sem er þá árið (97 = 1997).
Hinsvegar þá er þetta ekki algild regla og ég held að þú sért best settur með að fara á www.smcmusic.com og velur þar þann flokk sem þinn gítar fellur undir og ferð þar í “contact us” og spyr þá bara, sendir þeim serial númerið. :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..