Mér þætti afskaplega vænt um ef einhver gæti bent mér á hressandi hljóðfærabúðir í NY þar sem hægt er að kapa gítar ásamt meðfylgjandi.
Ég veit af Guitarcenter en hún er nokkuð dýr, var að spá hvort það væru ekki einhverjir hérna hoknir af reynslu í gítarkaupum erlendis…endilega gefið mér hugmyndir!
pantar gítar af musiciansfriend,music123 o.s.frv. og ert ekki nema einn til 2 daga að fá hann til þín,,borgar svona 15-20 dollurum meira fyrir overnight delivery..ef þú ferð til NY og verður í viku eða lengur þá er þetta sniðugt…fljótlegt(innan bandaríkjana) aðeins lengra að fá það þegar þú ert hér heima á klakanum… ég veit um einn sem gerði þetta og hann fékk hann dagin eftir, hann fór bara út til NY og var á hóteli, í verslunarferð og hann fór bara á internet café og pantaði sér gripin upp á hótelherbergi og hann var komin dagin eftir.
það er sama verðið á gítörum og hljóðfærum á music123 og öllum þeim síðum eins og í gítarcenter og sem telst bara gott verð þú færð þetta ekkert ódýrara nema notað ;)
Ég vil þakka fyrir ábendingarnar. En ef þetta er verðið úti í USA þá skil ég ekki af hverju menn eru að kvarta hérna heima yfir háu verði á hljóðfærum…
Ein fín hérna líka sem heitir 30th Street Guitars. Hún er á 236w. 30th street. www.30thstreetguitars.com síðan er önnur niðri í Greenich Village og heitir Matt Umanov guitars.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..