Þegar ég byrjaði þarna fyrir svona 2 mánuðum fannst mér verðið vera dálítið hátt, en núna myndi ég ekki vilja vera annarstaðar. Það eru vaktmenn þarna sem passa upp á draslið þitt, enginn er með lykla nema þeir, sjoppa, auðvelt að semja um að fá að vera aðeins lengur ofl. Ég mæli sterklega með tþm, ef þú vilt geta verið slakur yfir dótinu þínu og svona. Annars er það bara smekksatriði, en ég var samt með svipaðan hugsunarhátt og þú áður en ég ákvað að prufa, var búinn að heyra margt neikvætt um þennan stað sem var síðan bara algert rugl.