Það eru mjög skiptar skoðanir með þessa digital magnara, sumir fíla þá alls ekki, aðrir dýrka þá, og enn aðrir segja þá góða, en ekki besta.
Persónulega myndi ég segja, að ef þú fílar hann, þá er þetta þrælfínn “fyrsti bandhæfi” magnari, þ.e.a.s. 2x10 og 2x12 týpurnar allavega. Svo er hann góður fyrir heimaglamur og lágværari verkefni þegar þú færir þig yfir í eitthvað enn stærra.
Svo ég segi, ef þú fílar hann, láttu þá bara vaða, þú átt ekkert eftir að sjá eftir því, en það eiga einhverjir hérna eftir að ráðleggja þér að skoða transistoramagnara í svipuðum verðflokki eins og t.d. MG seríuna frá Marshall, svo það væri ekkert ósniðugt að skoða sig um aðeins áður en þú dregur upp seðlana.