Hvað hafið þið hérna á huga gert til að hafa efni á því að skíta yfir Rusty Cooley og álíka shreddara?
Hvað höfum við gert?
Ég er bara að segja mitt álit á þessum gaur, MÉR FINNST HANN SPILA OF MIKIÐ AF SVONA DÓTI.
Komið með upptökur sem sýnir að þið eruð betri áður en þið farið að röfla um eitthvað sem þið hafið ekki hundsvit á.
Ég sagði aldrei að ég væri betri og ég veit að ég er það ekki en það er ekki málið. Maður þarf ekki að vinna sér inn þau réttindi að segja hug sinn í heiminum.
P.S. “Melódísk” sóló geta líka verið hröð..
Vissulega, en þetta sem hann er að spila er langt frá því að vera melódískt.
Svo hættu að rífa þig þarna bakvið tölvuskjáinn og sættu þig við það að fólk á rétt á sínum skoðunum. Þetta er mín skoðun á málinu og mér sýnist þín skoðun vera að hann sé að gera góða hluti með að spila alltaf svona hratt og ég virði það. Þú virðist hinsvegar ekki vilja virða skoðanir annarra á málinu.