Á hvað spilarðu?
Hinsvegar tók ég inntökupróf á rafgítar, var víst seinastur til að taka prófið. Þórður átti að prófa mig og annar gaur sem ég man ekki hvað heitir. En Þórður lét sig bara hverfa áður en ég mætti.
En gaurinn sem prófaði mig sagði eitthvað “ég hef mjög góða tilfinningu á þér, ég fæ gott ”vibe“ frá þér” og eitthvað svoleiðis. En svo komst ég ekki inn, þetta er þriðja skiptið sem ég reyni að komast inn!
Þetta er bara algjör klíkuskóli, það eiginlega bara þeir sem þekkja einhvern sem annaðhvort kenna þarna, eða eru í félaginu eða eitthvað þannig sem komast inn. Þannig að ég er að vona að ég komist inn á þessum biðlista, ef ekki þá reyni ég bara aftur í fjórða skiptið :@