tollar
ég var að spá í það hvernig gítar magnarar eru tollaðir? (í hvaða flokk, hljóðfæri eða rafmagnstæki eða eitthvað.)
Daginn Gísli og þakka fyrirspurnina.
Magnar hannaðir fyrir hljóðfæri eða söngkerfi tollflokkast í tollfl.
8518-4001 samkvæmt tollskrá
þar er aðalgjaldið virðisaukaskattur sem er = 24,5% sem reiknast á þitt
kaupverð ásamt flutningskostnaði til landsins,
svo er smá eftirlitsgjald á rafvörur = 0,15%
það er ekki tollur eða vörugjald á mögnurum og hátölurum fyrir hljóðfæri og
söngkerfi.
Kveðja
Tryggvi
uppl. tollstjóra