Til sölu amerískur Fender Stratocaster '57 vintage reissue. Gítarinn er ársgamall en er nær ónotaður. Plastfilma er enn á hvítu plötunni. Litur: Sunburst. Þessir gítarar eru bestu Stratocaster gítararnir sem framleiddir eru í dag! Þetta er endurgerð á 1957 árgerðinni. Gítarinn er í umboðssölu hjá Hljóðfærahúsi Reykjavíkur og er hægt að líta á hann þar. Hljóðfærahúsið setur 136.000 á hann (kostar nærri 160000 nýr) en ef einhver vill kaupa hann án milliliða er möguleiki á afslætti.
Þegar þessi gítar er borinn saman við amerískan standard Stratocaster þá kemst standardinn ekki með tærnar þar sem þessi hefur hælana hvorki í tón né spilhæfni.