Sko ég er mikið búinn að vera renna í gegnum magnara og græjumál í gegnum árin og hef oft verið að pæla í wöttum og krafti og fleira.
Ég hef mjög persónulegt svar fyrir þig, semsé mitt álit. Þannig að þetta er ekki hin eini sannleikur í magnaramálum. Ég er sjálfur að leita mér að magnara fyrir mitt sánd. Ég hef fundið hann og stefni á að kaupa sem fyrst.
Það sem mér sýnist af því sem ég les af þér þá ertu nýbyrjaður og átt enn eftir að finna nýjar leiðir og explora tónlistarheiminn.
Þannig að fyrir þig núna sem stendur væri einhver lítill lampamagnari eða meðalstór Transitor. Ég hef ekki kynnt mér þessa “ódýrari” hlið af mögnurum. En ég er með einn sem þú verður að tékka á. Það er lítill Orange magnari sem er held ég rétt um 30 Wött…ég bara gleymi alltaf hva týpan heitir. Rocker eða eitthvað álíka. Djúsi clean sánd og allveg snartryllt od. sánd.
Tékkaðu allveganna á honum.
Annars veit ég rassgat