Ég er sko ekki gítarleikari og er ekkert svo mikið fyrir gítara (nema kassagítarinn hans pabba sem er með biluðum pikkup og stálstrengjum :D) En pabbi minn er það :P
Ég spila ekki ennþá mikið á trompet en ég er að fara að læra í haust. Ég spila á flautu og er svona aðeins sjálflærð á píanó (get samt ekkert flókið, bara svona hljómar og laglínur, ég lærði líka tónfræði eftir píanói) En ég hef reynt að spila á gítar í heilt ár og það er hræðilegt! :P
Mér finnst ekkert erfitt að pikka eitthvað upp á gítar, en ég spila hörmulega :S Ég get meira að segja spilað flesta hljóma en ég kann ekki að nota nögl og puttarnir flækjast bara í strengjunum :S Þar að auki er ég með asnalegar neglur sem ég get ekki klippt nógu stuttar án þess að það fari að blæða :S
Ég held að mér sé ekki ætlað að spila á strengjahljóðfæri :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..