Allt í lagi, það sem svona ágæt auglýsing hefur væri eftirfarandi:
-Verðhugmynd (ef það er enginn þá skrifa bara "tilboð óskast eða e-ð).
-Staðsettning.
-Hverskonar vara þetta er.
-Einhverjar smá upplýsingar um vöruna.
-Símanúmer eða e-mail til að svara.
Þú varst með 2 af þessu svöruðu alminnilega. Þar með ert þú fallinn í auglýsinga gerð með einkunnina 4.
Svona til að auðvelda þeim sem vilja skoða þetta aðeins þá skal ég setja framm nokkrar spurningar:
1. Hvar ert þú (eða vinur þinn) staddur (og já ef varan er ekki á sama stað þá væri fínt að vita hvar hægt er að nálgast hana)?
2. Þar sem er búið að koma framm að þetta sé Squire gítar þá spyr ég bara Strat eða Tele eða einhver annar?
3. Heimasíða sem bendir á þennan grip eða þá að þú getir sagt okkur einhverjar upplýsingar um hann ?
Þetta ætti að verða mun betra. :)
Mér finnst að fólk ætti að fara að vanda auglýsingarnar, ef fólk vill selja manni eitthvað þá á það að setja auglýsinguna framm þannig að kaupandi getur gegnið að öllum upplýsingum í auglýsinguni og þarf því ekki að spyrja neinnar basic spurninga.