hvernig skóm finnst ykkur trommurum vera bestir, er að tala um trommara sem nota mikið double pedal. Hvernig gerðir eru bestar fyrir að ná hröðum slögum með double pedal?
Er ekki bara ágætt að fara úr skóm við það að tromma? Mér finnst það ágætt, eða þá létta, þunnbotna strigaskó, er samt ekki trommari en hef gaman af því að tromma.
Mér finnst best að vera ekki í skóm á settinu sem ég spila á.. (á það ekki sjálfur, það er í eigu skólans >:/ )
en já á þessu setti er hræææææðilegur kicker og þess vegna get ég ekki verið í skóm því annars finn ég ekki fyrir hvort ég sé að slá eða ekki :S né hversu fast það er, en ég er ekki viss hvort þetta sé pedalinn eða ég.. hef ekki mikla reynslu af öðrum settum.
Mér finnst best að vera í adidas shelltoe. Keypti þá sérstaklega fyrir trommurnar þannig að þeir eru ekki skítugir og rispa ekki kickerinn. Annars er það ábyggilega bara persónubundið.
Ég veit það hljómar kjánalega en vinur minn sagði að það væri best að vera í svona svörtu stígvélum eins og maður átti alltaf þegar maður var lítill því þá eru fæturnir alveg stífir og gott að sparka i petalana þá
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..