Jæja ég hef ákveðið að eyða peningunum mínum í nýjann gítar. Uppáhalds hljómsveitinar mínar eru Megadeth og Pantera. Þannig að ég er að spá í 2 gítara. Vill bara fá að vita hvor ykkur fynnst vera betri.
Ég myndi ekki detta í þá gildru að kaupa einhvern gítar sem uppáhalds tónlistarmaðurinn minn notar bara útaf því að hann notar hann. Prófaðu alla gítara sem þú kemst nálægt og ákveddu þig þannig
Heyrðu maður! Ég er búinn að prófa alveg helling af gítörum, þar á meðal Gibson les Paul Custom. Og líka þessa 2 og eftir að hafa prófað þá get ég ekki ákveðið mig hvorn ég vill.
“Blood Is The Life Which Flows In You. But It's Also Death When It Escapes. A True Symbol Of Life And Death…”
Ekkert að því að kaupa þessa gítara ef þeir eru þeir bestu sem þú hefur fundið. Það gerðist líka í mínu tilfelli eiginlega.. keypti mér Kirk Hammett Sig.. þó svo að hann sé ekki beint uppáhalds tónlistarmaðurinn minn þá er þetta bara besti gítar sem ég hef prófað :)
Hvort viltu gítar með Floyd Rose eða Tune-O-Matic. Ég veit að DV8R er með 25,5“ ”skala“ (Fender skala), veit ekki með FBD-inn, en hann lookar eins og gítar sem væri með 24,75” (Gibson) skala, en það segir ekkert svo e´g er ekki viss. DV8 er Neckthrough, FBD er set neck. Nóg af atriðum eftir sem greina þá að til að hjálpa þér með valið.
persónulega myndi ég fá mér Dave Mustain gítar af því að ég á nú fyrir floyd rose gítar og væri til í að hafa annan gítar sem væri stilltur í aðra stillingu. Mér finnst þetta look á dimebaggíturunum bara passa við dimebag eiginlega þannig að ég myndi fá mér Dave gítarinn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..