Rín er örugglega með varahluti í Epiphone þar sem þeir eru með umboðið. Passaðu þig á því að biðja um brú fyrir Epiphone gítar vegna þess að fæstir partar ganga á milli Gibson og Epiphone (og milli amerískra og asískra gítara almennt held ég) vegna þess að kaninn notar yfirleitt allt aðra hluti sem passa betur í þeirra gamaldags mælieiningakerfi.
Hvað Floyd Rose varðar, þá þykir Original Floyd Rose alltaf skothelt, en einstaka “Licensed” framleiðendur, t.d. Schaller og Gotoh, eru að framleiða brýr sem þykja alveg sambærilegar, ef ekki betri.