Ef þetta var spurning þá er þetta mitt svar:
Þessi magnari er ekki frábær í alla tónlist, hann er mjög góður í blús, jazz og kanski gamla góða rockið.
Ef þú ert að spá í þessum þá myndi ég ekki hika við að fá mér hann ef þú átt efni á honum og ert til í að borga svona fyrir hann, ég myndi kaupa mér Shure SM57 í leiðini því þá geturu vel spilað með hann live og það er yndislegt að taka upp þessa magnara því þeir eru “ekki” háværir.
Samt myndi ég prufa hann vel áður en þú kaupir hann og ekki hika við að hækka vel yfir helming í volume í búðini til að sjá hvort hann standist kröfur þínar varðandi hljóðstyrk.