Þú verður aldrei stjórnandi hérna.
Annars er engin þörf á aukastjórnanda. Ég samþykki myndir einu sinni á sólarhring og stundum á tveggja sólarhringa millibili. Þá samþykki ég oftast svona 6-10 myndir í röð. Ástæðan útaf því ég hendi svona mörgum myndum inn í einu er að ég er að fá mjög mikið magn af myndum og ef ég myndi ekki henda mörgum inn í einu þá væru svona 100 myndir ósamþykktar.
Ég er oft á huga og er mjög aktívur í að samþykkja efni á þessa síðu og ef að myndin þín er ekki samþykkt mánuði eftir að þú sendir hana inn (btw mynd hefur aldrei verið mánuð á biðlista hérna, mesta lagi viku) þá er það rugl og þú ert að ljúga, sem þú ert augljóslega að gera. Mig minnir líka að þú hafir aldrei sent inn mynd hingað og ég hef aldrei séð þig inn á þessu áhugamáli þannig ég veit ekki hvað þú ert að rífa þig.