Áttu þá við Floyd Rose brúnna eða Floyd Rose gítarana? Því ef þú ert að tala um Floyd Rose gítarana þá held ég að þeir virki ósköp svipað og allir aðrir gítarar.
En ef þú ert að tala um brúnna þá er þetta svona “fljótandi” kerfi. Maður festir strengina við hausinn og svo er hægt að fínstilla tune-inguna á brúnni. En það getur verið svolítið vesen að tune-a þetta fyrst ef þú ert ekki vanur. Þetta heldur mjög vel stillingu og þú átt að geta t.d. “dive-bombað” þ.e.a.s. að taka sveifina og ýta henni lengst niður þannig að strengirnir verði lausir og svo farið með sveifna aftur upp og þá á gítarinn ennþá að vera í réttri stillingu.