Ég mundi gera þetta sjálfur. Er pickguard á gítarnum? Þú getur örugglega búið til pláss undir því með fræsara. Einnig getur þú kannski komið batteríinu fyrir ofan á tone/control pottunum.
Það er reyndar hægt að láta gera þetta fyrir sig í Hljóðfærahúsinu og Rín, en Hljóðfærahúsið tekur um 6000 krónur fyrir að setja aktíva pickupa í passive pu gítar, sem er nærri því jafn mikill peningur og einn pickup kostar.
Ég ætlaði að fá mér EMG í SG-inn minn en hætti við það, það var bara of mikið vesen. Ég fékk mér í staðinn Seymour Duncan pickupa sem ég sé ekki eftir.
selur þá á nokkuð góðu verði, einn pickup kostar 7900. ZW sett kostar aðeins minna en tveir stakir pickupar saman, þannig að það er ekki mjög mikill ávinningur af því að kaupa það. Ef þú ert viss um að þú vilt fá þér EMG þá skaltu fara út í Hljóðfærahús eins fljótt og þú getur, því þessir pickupar seljast mjög hratt upp.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..