Nei… Behringer magnararnir eru ekkert sérstaklega hljómfagrir að mínu mati, ég á V-amp Pro (formagnari í Rack) og hann hljómar einstaklega illa. Ég er mikill aðdáandi af græjum frá behringer, en samt eru margar frá þeim bara bölvað drasl.
Ég er mikið á móti digital mögnurum og mæli frekkar með að þú fáir þér einhver transistor en ef þú ert í leit af effecta flóði og allskonar hljóðum í magnaranum þínum þá skaltu allavega frekkar fá þér Line6 í stað Behringer.
Allavega þá er það mín skoðun, en ef þú átt þennan magnara núna og ert að pæla í þessum effect, þá skaltu safna þér fyrst fyrir betri magnara, því þá verður hljómurinn betri hjá þér og þér mun líklegast finnast mikið skemmtilegra að spila.