Jæja Sblender, núna ætla ég að vera vondur…
Fyrir það fyrsta þá á þessi pistill þinn að vera undir “Óskaðu eftir eða auglýstu”. Ég er samt ekki hissa á að þú fattir það ekki; allavegana ekki að dæma af undirskirft þinni um mongolíta sem er niðrandi fyrir fólk með Downsheilkenni, heimsk vegna þess sem þú öfundar þau fyrir og að lokum bendir til að takmarkað gerist milli eyrnana á þér.
Byrjum á því að almennt er vitlaust að öfunda einn eða neinn, en hámark vitlaysunar hlýtur að vera að öfunda einhvern sem er fatlaður. Mundu, það er lítið mál að hegða sér eins og fatlaður; meira mál fyrir fatlaðan að hegða sér eins og heilbrigður.
Varðandi reykingarnar. Ef þú átt við tóbak (löglegt) þá getur þú bara reykt það allan daginn sjálfur. Ef þú átt við kanabis þá held ég að ENGIN sem hefur rökstutt svo vel sé ástæður til að lögleiða slíkt hafi jafnframt mælt með misnotkun. Það er engin munur á alka eða pothausi annar en það sem þeir setja í sig.
Gerðu sjálfum þér greiða og skiptu um undirskrift. þessi er ekki skynsöm, sniðug né fyndin.