Spáðu í hvernig tónlist þú vilt spila. Hvaða gítarleikara viltu apa eftir? Ég held að flestir byrji á að stæla einhverjar fyrirmyndir og reyna að læra af þeim. Hvað eru þeir með?
Ég veit að þú hefur ekki efni (né þörf) á nákvæmlega því sem þeir eiga, en í flestum tilvikum má finna urmull af eftirlíkingum sem eru á viðráðanlegu verði.
Svo er það mín skoðun að ef maður ætlar að kaupa “ódýran” gítar borgar sig að fá einhvern sem er seldur hérlendis. Auðveldara að selja þá ef þú vilt betri gítar seinna meir.